5455. Össur ÞH 242 ex Gæfa ÞH 242. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér siglir Heimir Bessason báti sínum að leguplássi við smábátabryggjuna eftir löndun á Húsavík. Össur ÞH 242 hét upphaflega Sæborg SF 47 og var smíðuð úr furur og eik árið 1961 af Sigurði Sv. Sveinssyni á Borgarfirði eystra. 4,70 brl. að stærð með 24 … Halda áfram að lesa Össur ÞH 242
Month: október 2019
Fram ÞH 171
1322. Fram ÞH 171. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vélbáturinn Fram ÞH 171 var smíðaður árið 1973 af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri. Bátinn, sem var 7 brl. að stærð, smíðaði Baldur úr eik og furu fyrir feðgana Sigurð Jónsson og Ólaf Ármann Sigurðsson á Húsavík. Árið 1992 fékk báturinn nafnið Haförn ÞH 26 en hann … Halda áfram að lesa Fram ÞH 171
Kristján S SH 23
1214. Kristján S SH 23 ex Hugi BA 49. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kristján S SH 23 var smíðaður í Skipasmíðastöð Austfjarða hf. á Seyðisfirði árið 1972 og hét upphaflega Hafliði Guðmundsson GK 210. Eigendur hans frá því 25. febrúar 1972 voru Karel Karelsson Hafnarfirði og Kristján Albertsson í Garði. Þann 12. apríl sökk báturinn skammt … Halda áfram að lesa Kristján S SH 23
Vaka SU 9
2061. Vaka SU 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vaka SU 9 frá Reyðarfirði kom eitt sinn til Húsavíkur og voru þessar myndir teknar við það tækifæri. Kannski kom hún þó oftar en þetta skipti, hvað veit ég, en mig minnir að erindið hafi verið eitthvað tengt veiðarfærum. Vaka SU 9 var í eigu Eskfirðings hf. á … Halda áfram að lesa Vaka SU 9
Glæsileg endurbygging í gangi á 1186
1186. Ex Muggur EA 26 ex Haförn HU 4. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2019. Bátur sá er upphaflega hét Bliki EA 12 og smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1971 var sjósettur á Siglufirði á dögunum en verið er að gera bátinn upp sem skemmtibát. 1186. ex Muggur EA 26 ex Haförn HU 4. Ljósmynd Haukur … Halda áfram að lesa Glæsileg endurbygging í gangi á 1186
Rammi hf. hefur keypt Sigurbjörn ehf. í Grímsey.
1434. Þorleifur EA 88 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Rammi ehf. í Fjallabyggð hefur keypt allt hlutafé sjávarútvegsfyrirtækisins Sigurbjarnar ehf. í Grímsey. Aflaheimildir félagsins eru um 1.000 þorskígildistonn og eru kaupsamningar gerðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð er trúnaðarmál. Sigurbjörn ehf. hefur gert út þrjá báta og rekur litla fiskvinnslu í eynni, … Halda áfram að lesa Rammi hf. hefur keypt Sigurbjörn ehf. í Grímsey.
Garpur RE 148
2018. Garpur RE 148 ex Garpur SH 95. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Garpur RE 148 hefur verið hér á Húsavík undanfarna daga eins og hefur áður komið fram á síðunni. Þessar myndir tók ég í gær af bátnum á siglingu í haustblíðunni við Skjálfandaflóa Garpur RE 148 hét upphaflega Litlanes ÞH 52 og eigandi Óli … Halda áfram að lesa Garpur RE 148
Grímsnes GK 555 kom til Húsavíkur í dag
89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Netabáturinn Grímsnes GK 555 kom til hafnar á Húsavík í dag og ekki rekur mig minni til að hafa séð þennan bát hér fyrr. Upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði, smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi 1963 fyrir Varðarútgerðina hf … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555 kom til Húsavíkur í dag
Ísey að veiðum á Hraunsvíkinni
1458. Ísey ÁR 11 ex Kristbjörg ÁR 11. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar sendi drónann út til að mynda dragnótabátinn Ísey ÁR 11 sl. föstudag þar sem hún var að veiðum á Hraunsvíkinni. 1458. Ísey ÁR 11 ex Kristbjörg ÁR 11. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Ísey ÁR 11, sem er í eigu Saltabergs ehf., … Halda áfram að lesa Ísey að veiðum á Hraunsvíkinni
Rembrandt van Rijn kom til Húsavíkur
Rembrandt van Rijn á Skjálfandaflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska seglskipið Rembrandt van Rijn kom til hafnar á Húsavík nú undir kvöld en skipið hefur komið hingað undanfarin haust. Skipið er þriggja mastra skonnorta smíðuð 1924 sem fiskiskip og hét upphaflega Jakoba. Snemma á níunda áratug síðustu aldar var því breytt til siglinga með farþega og siglir … Halda áfram að lesa Rembrandt van Rijn kom til Húsavíkur









