
Garpur RE 148 kom til Húsavíkur í dag en til stendur að nota hann í kvikmynd sem á að taka hér.
Samkvæmt skipaskrá er Góa ehf. eigandi Garps, sem smíðaður var hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1989. Báturinn hét upphaflega Litlanes ÞH 52 og eigandi Óli Þorsteinsson á Þórshöfn.
Litlanes ÞH 52 var selt til Fáskrúðsfjarðar árið 1990 þar sem það fékk nafnið Dagbjört SU 50. Síðar átti það eftir að bera nöfnin Mímir ÍS 30, Bergey SK 7, Fiskanes NS 137 og svo NS 37.
Árið 2000 fékk báturin nafnið Garpur SH 95 og heimahöfnin Grundarfjörður. RE 148 varð hann svo árið 2013.
Garpur RE 148 er 13,8 metra langur, en hann var lengdur á sínum tíma og styttur aftur. Hann mælist 11,77 brl./19,78 BT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Það á að nota Garpinn í bíómynd sem á að fara að taka á Húsavík
Líkar viðLíkar við
Ok gaman að vita af því
Líkar viðLíkar við
Þeir hafa staðið sig vel þessir 9,9 tonna bátar sem vor smíðaðir ´j Vélsmiðju Seyðisfjarðar.
Líkar viðLíkar við
Þeir binda illa Garparnir að sunnan kv.AE.
Líkar viðLíkar við