Arved Fuchs ofl. um borð í Dagmar Aaen í Húsavíkurhöfn.

Arved Fuchs og Brigitte Ellerbrock áamt gestum um borð í Dagmar Aaen. Ljósmynd Hafþór. Þýska skútan Dagmar Aaen hefur haft vetursetu á Húsavík í vetur. Þegar ég var að mynda niður við höfn í gærkveldi komu eigendur hennar, hjónin Arved Fuchs og Brigitte Ellerbrock að skútunni ásamt öðru pari.  Þau báðu mig að mynda sig … Halda áfram að lesa Arved Fuchs ofl. um borð í Dagmar Aaen í Húsavíkurhöfn.

Sæþór EA 101

2705. Sæþór EA 101. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Sæþór EA 101 kemur hér til hafnar á Dalvík í sumar. Sæþór EA 101 er gerður út til netaveiða af G.Ben útgerðarfélagi ehf. á Árskógssandi. Sæþór EA 101 er af gerðinni Víkingur 1500 og var smíðaður hjá bátagerðinni Samtak árið 2006. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Sæþór EA 101

Helgi Héðinsson 90 ára í dag

Helgi Héðinsson um borð í Fram ÞH 62 þann 6. apríl 2018. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Helgi Héðinsson sjómaður á Húsavík er níræður í dag en hann fæddist á Húsavík og hefur átt hér heima alla sína tíð. Helgi hefur stundað sjómennsku frá unga aldri og er enn að, fer með Óðni félaga sínum og frænda … Halda áfram að lesa Helgi Héðinsson 90 ára í dag

Geiri Péturs ÞH 344

1872. Geiri Péturs ÞH 344 ex Skúmur ÍS 322. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geiri Péturs ÞH 344 leggur hér úr höfn á Húsavík um árið áleiðis á rækjumiðin. Upphaflega hét skipið Skúmur GK 22 í eigu Fiskaness h/f í Grindavík. Smíðaður í Ramvik í Svíþjóð 1987 og mældist 242 tonn að stærð. Hafboði h/f í Hafnarfirði … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344

Litlanes ÞH 3

2771. Litlanes ÞH 3 ex Muggur HU 57. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Litlanes ÞH 3 kemur hér að landi í Grindavík í marsmánuði á þessu ári. Litlanes var smíðað árið 2000 Sólplasti í Sandgerði og hét í upphafi Muggur KE 57 . Síðar HU 57.  Fagranes útgerð ehf. á Þórshöfn, sem er í eigu Ísfélags Vestmannaeyja hf., keypti bátinn … Halda áfram að lesa Litlanes ÞH 3

Wilson Stadt við Bökugarðinn

Wilson Stadt ex Linito. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Wilsonfjölskyldan hedlur áfram að koma með hráefni til PCC á Bakka og í dag liggur Wilson Stadt við Bökugarðinn þar sem uppskipun fer fram. Skipið var smíðað árið 2000, siglir undir Maltneskum fána með heimahöfn í Walletta. Lengd þess er 113 metrar og breiddin 15 metrar. Mælist 4.200 … Halda áfram að lesa Wilson Stadt við Bökugarðinn

Skarfur GK 666

1023. Skarfur GK 666 ex Fylkir NK 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Skarfur GK 666 lætur hér úr höfn í Grindavík, sennilega í septembermánuði árið 2002. Báturinn hét upphaflega Sléttanes ÍS 710 og var 268 brl. að stærð. Smíðaður fyrir Fáfni h/f á Þingeyri í Boizenburg í A-Þýskalandi árið 1967. Seldur Tálkna h/f á Tálknafirði … Halda áfram að lesa Skarfur GK 666