
Það hefur verið mokfiskerí hjá köllunum á Áskeli EA 749 og í dag komu þeir til hafnar í Grindavík með fullfermi, 180 kör eftir 22,5 klst. veiðiferð.
Jón Steinar, sem tók þessar myndir í dag, skutlaði bróður sínum um borð í Áskel kl. 13 í gær og tók svo við endanum hjá þeim kl. 11:30 í morgun.
Aflann, sem var uppistaða þorskur, fengu þeir í 6 holum suðaustur undir Eyjum.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
‘Eg er svo gamall að muna eftir aflahrotum á vetrarvertíð þegar þorskurinn kom upp á landgrunnið til hrygningar á þessum tíma . á Búðakletti GK251 vorum með 11-14 trossur í sjó , grisju fyrir hrognapokana ,allt matur nema skötuselurinn fékk flugferð fyrir borð , ásamt karfa , veislumatur í dag, nó að sinni . kv.sunnan frá Faxaflóa. AE.
Líkar viðLíkar við
Sæl Axel.Tímarnir breytast og mennirnir með sem betur fer er allt hirt í dag.
Líkar viðLíkar við