
Nú á dögunum afhenti Bátasmiðjan Trefjar nýjan Cleopatra bát til Kjøllefjord í Noregi.
Kaupandi bátsins er Daniel Lauritzen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum sem hefur hlotið hið umtalað nafn Tinder. Tinder er af gerðinni Cleopatra 36, 11metra langur og mælist 14 brúttótonn
Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 410hp tengd ZF V-gír. Rafstöð af gerðinni Nanni 7.5kW. Andveltigýro af gerðinni Quick er staðsettur í vélarrúmi
Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC.
Báturinn er einnig útbúin vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða.
Línuspil kemur frá Beiti annar veiðibúnaður kemur frá Noregi.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.
Rými er fyrir 15 stk. 380 lítra kör í lest. Stór borðsalur er í brúnni. Fullkomin eldunaraðstaða er í lúkar. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni með sturtu.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution