
Línubáturinn Garðey SF 22 kemur hér til löndunar á Húsavík í ágústmánuði árið 2003, svona líka fallega rauð.
Garðey SF 22 var smíðuð í Boizenburg í Austur-Þýskalandi 1965, hét upphaflega Þorsteinn RE 303.

Síðar bar báturinn nöfnin Hafrún ÍS, Hafrún BA, Pétur Ingi KE, Stjörnutindur SU, Lýtingur NS, Vigdís BA, Haraldur EA, Ásgeir Guðmundsson SF og Atlanúpur ÞH þangað til hann fékk nafnið Garðey SF og loks Kristín GK eftir að Vísir eignaðist hann.
2008 varð Kristín ÞH 157 með heimahöfn á Húsavík, eigandi Vísir hf.
Árið 2014 fékk báturinn aftur einkennisstafina GK og númerið 457. Eigandi Vísir hf. og heimahöfnin Grindavík.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution