
Hulda GK 17 kemur hér að landi í Grindavík núna rétt í þessu en Jón Steinar tók myndina á drónann sinn.
Á eftir henni kemur Grindjáni GK 169 og ég hef aldrei séð hann nema á fullu ferðinni þannig að ég geri ráð fyrir að hann hafi orðið á undan að bryggju.
Hulda GK 17 va áður HF 27 en hét upphaflega Oddur á Nesi SI 76 og var báturinn smíðaður hjá Seiglu á Akureyri fyrir BG Nes ehf á. Hann kom til heimahafnar á Siglufirði upp úr miðjum janúar 2017.
Seldur Blikabergi ehf. í júlí 2017 og tók BG Nes ehf. Huldu HF 27 upp í og heitir sá bátur Oddur á Nesi í dag.
Samkvæmt vef Fiskistofu er útgerðaðili Huldu GK 17 í dag Háaöxl ehf. á Fáskrúðsfirði en eigandi Blikaberg ehf. sem fyrr. Hvað sem síðar verður.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution