
Eitt þeirra kolmunnaveiðiskipa sem liggur þessa stundina í vari inn á Donegalflóa við Írland er hin færeyska Katrin Jóhanna VA 410
Skipið var keypt til Færeyja seint á síðasta ári frá Noregi en þar bar það nafnið Herøy. Smíðað árið 1997, skrokkurinn í Nauta Shipyard, Gdynia, í Póllandi en skipið klárað hjá Myklebust Mek. Verksted AS, í Noregi.
Kaupendur voru Tummas Henriksen í Sørvági ásamt Árna og Hjarnar Dalsgaard í Skálavík. Heimahöfnin er Miðvågur og útgerðin heitir Kinnfelli p/f .
Katrin Jóhanna hét upphaflega Zeta til ársins 2010 er skipið fékk Herøyarnafnið. Það er 73,3 metrar á lengd og 12,6 metrar á breidd, mælist 1914 bT að stærð. Aðalvélin er Wärtsilä 3960KW.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution