Hlíf GK 250

663. Hlíf Gk 250 ex Hlíf ÞH 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hlíf GK 250 hét upphaflega Lómur ÞH 80 og var smíðaður af Ernst Pettersen á Seyðisfirði 1960. Eigandi hans var Sveinbjörn Jóhannsson Þórshöfn á Langanesi.

Lómur var 7. brl. að stærð, smíðaður úr eik og furu. Báturinn var seldur Tryggva Óskarssyni á Þórshöfn árið 1970 og fékk hann þá nafnið Hlíf ÞH 80.

1981 er hann aftur seldur innanbæjar á Þórshöfn þegar Stefán Óskar Jóhannsson kaupir hann. 1983 kaupir Agnar Vilhjálmsson helmingshlut í bátnum sem er síðan seldur til Grindavíkur vorið 1984.

Kaupandinn var Gunnar Berg Ólafsson sem lét bátinn heita áfram sama nafninu en hann varð GK 250. Báturinn er enn skráður í Grindavík 1989 þegar Jón Björnsson var að vinna bækur sínar Íslensk skip en þaðan eru þessar upplýsingar komnar.

Á vef Fiskistofu er Hlíf GK 250 enn skráð í Grindavík árið 2002 og Gunnar Berg Ólafsson eigandinn. Spurning hvenær báturinn fór af skipaskrá ?

Mér hafa borist þær upplýsingar að báturinn hafi farið austur í sveitir eins og þeir segja fyrir sunnan árið 2002 eftir að Gunnar Berg keypti Byr Gk 59 árið áður.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.

3 athugasemdir á “Hlíf GK 250

  1. Var byggður á Seyðisfirði 1960 af Ernst Pettersen og ég hef grun um að fyrirmyndin hafi verið Nakkur SU byggður 1912 og að ég held umbyggður af Ernst PS Gunnar Ólafsson og Gunnar Berg Ólafsson eru sami maðurinn 🙂

    Líkar við

  2. Mér hafa borist þær upplýsingar að báturinn hafi farið austur í sveitir eins og þeir segja fyrir sunnan árið 2020 þegar Gunnar Berg keypti Byr Gk 59. á þetta að vera árið 2002 ?

    Líkar við

Skildu eftir svar við Magnús Gunnarsson Hætta við svar