
Móna GK 303 kemur hér að landi í Sandgerði sumarið 2012 en það var hennar heimahöfn árin 2011 til 2013.
Móna hét upphaflega Haftindur HF 123 og var smíðuð hjá Básum hf. í Hafnarfirði árið 1974.
Árið 1978 var báturinn, sem er tæpar 20 brl. að stærð, seldur á Drangsnes þar sem hann fékk nafnið Gunnvör ST 39.
Á Drangsnesi var báturinn til ársins 2003 en þá fékk hann nafnið Glettingur NS 100 með heimahöfn á Borgarfirði eystra.
Ári síðar var hann aftur skráður undir sínu fyrra nafni en nú með ST 38.
Frá árinu 2005 hefur hann borið nöfnin Lena GK 42, Lena ÍS 31, Móna GK 303, Gulley KE 31, Jón Skólastjóri KE 31 og síðar GK 60.
Það nafn ber báturinn enn og ef mér skjöplast ekki hefur hann staðið uppi við Skipasmíðastöð Njarðvíkur í einhver ár.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution