Þórsnes SH 109

967. Þórsnes SH 109 ex Marta Ágústsdóttir GK 14. Ljósmynd Vigfús Markússon. Á þessari mynd úr safni Vigfúsar Markússonar gefur að líta Þórsnes SH 109 draga netin. Upphaflega hét Þórsnesið Keflvíkingur KE 100 og var smíðað árið 1964 í Boizenburg í A-Þýskalandi. Þórsnes fór í brotajárn árið 2017, nánar tiltekið til Ghent í Belgíu. Með því að … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109

Iða jólaljósum prýdd

1432. Iða ÞH 321 ex Von ÞH 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér gefur að líta Iðu ÞH 321 prýdda jólaljósum í Húsavíkurhöfn. Iða hét áður Von ÞH 54 og var smíðuð í Neskaupstað árið 1975. Báturinn er  6 brl. að stærð og hét upphaflega Þórey NK 13. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Iða jólaljósum prýdd

Ásbjörg ST 9

1487. Ásbjörg ST 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ásbjörg ST 9 var síðasti eikarbáturinn af þessari stærð sem Skipavík í Stykkilshólmi smíðaði. Hún var afhent árið 1977 og átti heimahöfn á Hólmavík. Í 15. tbl. Ægis 1977 sagði m.a: 1. júlí sl. afhenti Skipasmíðastöðin Skipavík h.f. í Stykkishólmi nýtt 47 rúmlesta eikarfiskiskip, sem er nýsmíði nr. … Halda áfram að lesa Ásbjörg ST 9

Doggerbank á Skjálfanda

IMO 9341768. Doggersbank ex Jaguar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Doggersbank siglir hér út Skjálfandaflóa í gær eftir að hafa losað hráefnisfarm til PCC á Bakka. Það birtist kvöldmynd af skipinu við Bökugarðinn hér á síðunni í fyrradag og með henni þessar upplýsingar: Doggerbanks siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Skipið er er … Halda áfram að lesa Doggerbank á Skjálfanda

Ginneton kom til Eyja í dag

IMO 9350628. Ginneton GG 203 ex Ceton. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2021. Nýtt uppsjávarskip í flota Ísfélags Vestmannaeyja, Ginneton GG 203, kom til Vestmannaeyja um hádegisbil í dag Á Fésbókarsíðu Ísfélagsins segir að strax verði hafist handa við að læra á skipið og skrá það í íslenska skipaskrá. Skipið fær nafnið Suðurey VE 11 með skipaskrárnúmer … Halda áfram að lesa Ginneton kom til Eyja í dag

Doggersbank við Bökugarðinn

IMO 9341768. Doggersbank ex Jaguar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hollenska flutningaskipið Doggersbank kom til Húsavíkur á áttunda tímanum í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Þar er nú verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka en myndin af skipinu var tekin síðdegis í dag.  Doggerbanks siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. … Halda áfram að lesa Doggersbank við Bökugarðinn

Gunnar SU 139

73. Gunnar SU 139. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Gunnar SU 139 var einn tappatogaranna sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í A-Þýskalandi á árunum 1958-1959, nánar tiltekið í Stralsund. Í Tímanum 14. júní 1959 sagði svo frá komu Gunnars SU 139: Snemma í morgun lagðist vélskipið "Gunnar" SU-139 að bryggju á Reyðarfirði. Var skipið allt fánum … Halda áfram að lesa Gunnar SU 139