
Hér liggja þeir við hafnargarðinn á Húsavík haustið 2013 þýsku öldungarnir frá Boizenburg Kristín ÞH 157 og Þórsnes SH 109.
Upphaflega hét Þórsnesið Keflvíkingur KE 100 og var smíðað árið 1964 en Kristín var smíðuð 1965 og hét upphaflega Þorsteinn RE 303.
Þórsnes fór í brotajárn árið 2017, nánar tiltekið til Ghent í Belgíu. Kristín heitir Steinn GK 65.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution