
Jón Steinar tók þessar myndir í dag þegar línubáturinn Óli á Stað GK 99 nálgaðist heimahöfn í Grindavík.
Afli dagsins var hálft fjórða tonn en aðeins helmingur línunnar lagður.
Jón Steinar hefur það eftir strákunum að það sé komin „loðnulykt“ á svæðið og þá er ekki mikil fiskivon á línuna á meðan loðnan fer um.
Óli á Stað GK 99 var smíðaður fyrir Stakkavík í Seiglu á Akureyri og afhentur vorið 2017. Hann er 14,8 metra langur og mælist 29.95 BT að stærð.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution