
Frár VE 78 var smíðaður í Noregi árið 1969 en keyptur hingað til lands af Kirkjukletti hf. í Sandgerði árið 1971.
Í Sandgerði fékk báturinn nafnið Jón Oddur GK 104 en í nóvember 1977 breyttist það í Jón Guðmundsson GK 104.
Í ársbyrjun 1980 keypti Vogur hf. á Djúpavogi bátinn, sem var 124 brl. að stærð, og gaf honum nafnið Krossanes SU 5.
Rúmu árið síðar er báturinn kominn til Vestmannaeyja þar sem hann fær það nafn sem hann ber á myndinni, Frár VE 78. Eigandi Óskar Þórarinsson.
Báturinn var rifinn í Vestmannaeyjum árið 2007 en þá hafði hann legið í höfninni um árabil.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Takk fyrir þetta Haffi minn , frændi þinn ÞH344 er kominn í hús, Fín mynd frá Caprí Norðursins af bát félaga Tryggva vélstj. Farsællt nýtt ár strákar mínir og þakka gömlu árin með myndum af gömlu og nýju skipunum í flota okkar . sem þið hafið fest í mynd og mál með nyjustu tækjum og vinnu…. ‘Afram ‘Island til sjós og lands árið 2021. Kveðja sunnan frá Faxaflóa … Axel E.
Líkar viðLíkar við