
Á dögunum birtust myndir af Fönix BA 123 láta úr höfn á Húsavík og sýndu stjórnborðssíðu bátsins.
Nú koma myndir sem sýna bakborðssíðu bátsins sem Krossi-útgerðarfélag ehf. á Patreksfirði á og gerir út.
Báturinn er tæp 15 BT að stærð búinn 302 kw Cumminsvél. Smíðaár 2011.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution