2774. Kristrún RE 177 ex Appak. Ljósmynd Óskar Franz 2017. Línuskipið Kristrún RE 177 er í eigu Fiskkaupa hf. sem keypti skipið frá Kanada árið 2008 en þar hét það Appak og var í eigu Norðmanna. Upphaflega hét Kristrún RE 177 Staalbjørn, þá Stalbjørn og Eldfisk áður en það fékk Appaknafnið. Kristrún var smíðuð í Solstrand … Halda áfram að lesa Kristrún RE 177
Day: 15. desember, 2018
Ósk ÞH 54
2447. Ósk ÞH 54 ex Guðný NS 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Ósk ÞH 54 hét áður Guðný NS 7 og var keypt til Húsavíkur frá Seyðisfirði í ársbyrjun 2016. GPG Seafood ehf. keypti bátinn bátinn þaðan og færði aflaheimildir hans yfir á annan bát í eigu fyrirtækisins. Guðný er tæp 12 bt. að stærð af AWIgerð … Halda áfram að lesa Ósk ÞH 54
Skógafoss á Húsavík
Skógafoss við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Skógafoss Eimskipafélagsins kom til Húsavíkur upp úr miðnætti í gær og lagðist að Bökugarðinum þar sem upp- og útskipun fer fram. Skógafoss var smíðaður árið 2007 og hét Ice Bird til ársins 2011. Hann er 130 metrar að lengd og 20,6 metra breiður. Mælist 7.545 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Skógafoss á Húsavík
Cuxhaven NC 100 á Eyjafirði
Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Cuxhaven NC 100 er hér á siglingu undir Ólafsfjarðarmúla á leið sinni til Akureyrar í októbermánuði í fyrra. Skipið hafði verið við grálúðu- og karfaveiðar við Grænland og kom til löndunar á Akureyri. Við Haukur Sigtryggur fórum með Sigurjóni Herbertssyni á Fanney EA 82 til móts við togarann … Halda áfram að lesa Cuxhaven NC 100 á Eyjafirði



