
Helgi Flóventsson ÞH 77 kemur hér til hafnar á Húsavík á sjöunda áratug síðustu aldar.
Hann var smíðaður fyrir Svan h/f á Húsavík í Risör í Noregi árið 1962 og kom í stað minni báts sem sökk um 4,5 sjómílur norðvestur af Langanesi 4 ágúst árið 1961. Áhöfnin, 11 skipverjar, björguðust í gúmmíbjörgunarbát og þaðan í Stíganda ÓF 25 frá Ólafsfirði.
Helgi Flóventsson ÞH 77 var seldur frá Húsavík árið 1971 og kaupandinn var Þórður Óskarsson h/f á Akranes sem gaf honum nafnið Sólfari AK 170.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.
Fìn mynd af fallegu skipi.
Líkar viðLíkar við