
Eydís EA 44 leggur hér úr höfn á Dalvík eftir að hafa landað þar á síðustu dögum strandveiðitímabilsins og stefnan sett í heimahöfn í Hrísey.
Það er Eyfar ehf. sem gerir bátinn út en hann var smíðaður hjá Skel hf. árið 1982.
Hefur borið nöfnin Gosi SH 291, Sigurey ST 102, Elín ÍS 2, Elín ÍS 195, Gunnar Halldórs ÍS 195, Dolli ÍS 510, Hafdís ÍS 510, Siggi í Bót EA 46, Fleki EA 46 og Eydís EA 44 frá árinu 2020.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.