2728. Fíi ÞH 11 ex Halla Daníelsdóttir RE 770. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Fíi ÞH 11 kom til Húsavíkur í dag á leið sinni til nýrrar heimahafnar á Raufarhöfn. Erindið var að taka olíu og hélt báturinn leið sinni áfram um leið og það var búið. Fíi ÞH 11 hét áður Halla Daníelsdóttir RE 770 … Halda áfram að lesa Fíi ÞH 11
Month: mars 2022
Fjölnir GK 157
1136. Fjølnir GK 157 ex Ocean Breeze GK. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessa mynd af línuskipinu Fjölni GK 157 um helgina þegar skipið kom til Grindavíkur. Fjølnir var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Íslands og kom það til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1970. Þá hét það Skrolsvik T-84-TN en … Halda áfram að lesa Fjölnir GK 157
Samskip Skaftafell
IMO: 9164562. Samskip Skaftafell. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Eiríkur Sigurðsson tók þessar myndir á dögunum þegar Reval Viking var á landleið og mætti Samskip-Skaftafelli við Garðskaga. Samskip Skaftafell var smíðað árið 2000 og siglir undir fána Antigua & Barbuda með heimahöfn í Saint John´s. Skipið er 101 metrar að lengd og breidd þess 19 metrar. Það … Halda áfram að lesa Samskip Skaftafell
Guðmundur Arnar EA 102
2560. Guðmundur Arnar EA 102 ex Straumur ST 65. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Guðmundur Arnar EA 102 liggur hér við bryggju á Árskógssandi í dag en G.Ben útgerðarfélag ehf. keypti hann fyrr í vetur frá Hólmavík. Báturinn hét áður Straumur ST 65 en upphaflega Kristinn SH 112. Hann er tæplega 15 BT að stærð, af … Halda áfram að lesa Guðmundur Arnar EA 102
Donna Wood í slipp
Donna Wood. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Donna Wood, ein af skonnortum Norðursiglingar, fór upp í slipp á Húsavík á dögunum þar sem unnið er að viðhaldi á henni. Donna Wood var smíðuð smíðuð sem vitaskip árið 1918 en árið 1990 var henni breytt í það horf sem hún er nú í. Þ.e.a.s tvímastra skonnorta til … Halda áfram að lesa Donna Wood í slipp
Skógafoss við Bökugarðinn
IMO 9375252.. Skógafoss ex Ice Bird. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Skógafoss kom til Húsavíkur snemma í morgun og þurfti Virginiaborg að fara frá á meðan fossinn er losaður og lestaður. Skógafoss var smíðaður árið 2007 og hét Ice Bird til ársins 2011. Hann er 130 metrar að lengd og 20,6 metra breiður. Mælist 7.545 GT … Halda áfram að lesa Skógafoss við Bökugarðinn
Jóhanna Gísladóttir
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Jón Steinar tók þessar myndir í gær þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 lét úr höfn í Grindavík. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum í fyrra þar sem hann bar nafnið Bergur VE 44. Togarinn, sem hét upphaflega Westro, var smíðaður fyrir Skota í … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir
Virginiaborg við Bökugarðinn
IMO 9234290. Virginiaborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Virginiaborg kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði þar sem verið er að skipa upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Virginiaborg var smíðað árið 2001 og er 6.361 GT að stærð. Lengd þess er 132 metrar og breiddin 16 metrar. Skipið, sem hefur komið áður … Halda áfram að lesa Virginiaborg við Bökugarðinn
Ný Cleopatra 36 til Lofoten
Karin N-86-V. Ljósmynd Trefjar 2022. Otto Harold Williassen útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Otto verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem kominn er til Noregs og og mun hefja veiðar á næstu dögum. Karin N-86-V er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn að stærð. … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Lofoten
Argus kom til Hafnarfjarðar í gær
Argus við komuna til Hafnarfjarðar. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Nýtt skip IceTugs ehf., Argus, kom til Hafnarfjarðar í gær og tók Eiríkur Sigurðsson meðfylgjandi myndir. Argus er 68 metra langt skip í ísklassa A1 super sem notað verður við að þjónusta starfsmenn námuvinnslufyrirtækis við störf þeirra á Grænlandi. Eigendur Eigendur IceTugs eru bræðurnir Bragi Már … Halda áfram að lesa Argus kom til Hafnarfjarðar í gær









