
Flutningaskipið Virginiaborg kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði þar sem verið er að skipa upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka.
Virginiaborg var smíðað árið 2001 og er 6.361 GT að stærð. Lengd þess er 132 metrar og breiddin 16 metrar.
Skipið, sem hefur komið áður til Húsavíkur, siglir undir hollensku flaggi og er með heimahöfn í Delfzijl.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution