
Otto Harold Williassen útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Otto verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem kominn er til Noregs og og mun hefja veiðar á næstu dögum.
Karin N-86-V er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn að stærð.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650hö tengd ZF325IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til netaveiða en búnaður hans kemur frá Noregi.
Lest bátsins rúmar 15 stk. 380 lítra fiskikör.
Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni, svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar og í bátnum er salerni með sturtu.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.