Samvinna á síldarmiðunum

2882. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hilmar Örn Kárason 2021. Með fylgjandi myndir voru teknar á síldarmiðnum og sýna Víking AK 100 og Venus NS 150 þegar það síðarnefnda var að dæla um 620 tonnum íslenskrar síldar yfir í það fyrrnefnda. Það voru Húsvíkingar sem tóku myndirnar, Hilmar Örn Kárason 1. stýrimaður á Venus tók myndina … Halda áfram að lesa Samvinna á síldarmiðunum

Ný Cleopatra 36 til Þrándheims í Noregi

Skipson TR-10-O. Ljósmynd Trefjar 2021. Tommy Albertsen útgerðarmaður í Þrándheimi fékk á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Tommy verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem ber nafnið Skipson og er kominn til Noregs og mun hefja veiðar á næstu dögum. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Þrándheims í Noregi

Hrafnseyri ÍS 10

1576. Hrafnseyri ÍS 10 ex Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Hrafnseyri ÍS liggur hér við bryggju í Grindavík um árið en Þorbjörn-Bakki hf. keypti hana haustið 1997 frá Húsavík þar sem hún bar nafnið Kolbeinsey ÞH 10. Kolbeinsey ÞH 10 var smíðuð fyrir Höfða hf. á Húsavík í Slippstöðinni á Akureyri og kom … Halda áfram að lesa Hrafnseyri ÍS 10

Bjarni Ólafsson AK 70

2287. Bjarni Ólafsson AK 70 ex Voyager K. Ljósmynd Börkur Kjartansson. Bjarni Ólafsson AK 70 sem hér sést var keyptur til landsins vorið 1997 og leysti af hólmi eldra skip með sama nafni. Í 7-8 tbl. Ægis 1997 sagði m.a: Í apríl s.l. bœttist nýtt og glœsilegt nóta- og togveiðiskip, BjarniÓlafsson AK-70, í flota Akurnesinga. … Halda áfram að lesa Bjarni Ólafsson AK 70

Stakkavík ÁR 107

1036. Stakkavík ÁR 107 ex Stakkanes HU 121. Ljósmynd Kjartan Traustason. Stakkavík ÁR 107 er hér við bryggju í Reykjavík um árið og gæti hafa verið að landa á Faxamarkað. Stakkavík var einn 18 báta sem smíðaðir voru í Boizenburg fyrir Íslendinga á árunum 1964-1968. Báturinn hét upphaflega Guðbjörg ÍS 47 en Stakkavík var hans … Halda áfram að lesa Stakkavík ÁR 107

Ebroborg við Bökugarðinn í morgun

IMO 9463451. Ebroborg við Bökugarðinn í morgun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Ebroborg kom upp að Bökugarðinum í morgun eftir að hafa beðið síðan í gær eftir því að kompanískipið Lauwersborg færi frá. Ebroborg er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið 7,196 GT að stærð og var smíðað árið 2010. Lengd þess er 138 … Halda áfram að lesa Ebroborg við Bökugarðinn í morgun

Varðskipið Freyja kom til heimahafnar í dag

3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2021. Varðskipið Freyja kom til heimahafnar á Siglufirði í dag eftir siglingu frá Rotterdam í Hollandi þar sem skipið var afhent Landhelgisgæslunni á dögunum. Það var heldur hryssingslegt veðrið á Siglufirði, norðan rok og slydda. Haukur Sigtryggur lét það ekki stoppa sig og fór bæjarleið til … Halda áfram að lesa Varðskipið Freyja kom til heimahafnar í dag

Klara Sveinsdóttir SU 50

1638. Klara Sveinsdóttir SU 50 ex Drangavík ST 71. Ljósmynd Börkur Kjartansson. Hér gefur að líta togskipið Klöru Sveinsdóttur SU 50 við bryggju á Fáskrúðsfirði en þaðan var hún gerð út um nokkura ára skeið. Útgerð Akkur hf. á Fáskrúðsfirði. Klara Sveinsdóttir sem var 292 tonn var smíðuð í Noregi 1978 og keypt notuð til … Halda áfram að lesa Klara Sveinsdóttir SU 50

Lauwersborg kom í dag

IMO 9399387. Lauwersborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hollenska flutningaskipið Lauwersborg kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar nú er verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka.  Lauwersborg er 4,695 GT að stærð og var smíðað árið 2007. Lengd þess er 123 metrar og breiddin 14 metrar. Skipið siglir undir … Halda áfram að lesa Lauwersborg kom í dag

Glaður ÍS 221

1922. Glaður ÍS 221 ex Hafborg EA 156. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Glaður ÍS 221 kemur hér til hafnar í Hafnarfirði vorið 2009 en heimahöfn hans var í Bolungarvík. Upphaflega hét báturinn Sigmar NS 5 og var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1989. Árið 1990 fékk hann nafnið Magnús EA 25 með heimahöfn í Grímsey. … Halda áfram að lesa Glaður ÍS 221