
Glaður ÍS 221 kemur hér til hafnar í Hafnarfirði vorið 2009 en heimahöfn hans var í Bolungarvík.
Upphaflega hét báturinn Sigmar NS 5 og var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1989. Árið 1990 fékk hann nafnið Magnús EA 25 með heimahöfn í Grímsey.
Árið 1998 fékk hann nafnið Hafborg EA 152 sem hann bar til ársins 2006 er hann fær nafnið Glaður ÍS 221 með heimahöfn í Bolungarvík. Hann hafði verið EA 156 frá árinu 2005.
Frá árinu 2009 hefur báturinn, sem er 14,72 BT að stærð, borið nafnið Finni NS 21. Útgerð Hróðgeir hvíti ehf. á Bakkafirði.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution