2836. Gefjun EA 510 ex Blossi ÍS 225. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Gefjun EA 510 kom til Húsavíkur nú um kvöldmatarleytið en báturinn er við rannsóknir á vegum Hafró. Það er Krossi-útgerðarfélag ehf. á Patreksfirði sem á bátinn en upphaflega hét hann Blossi ÍS 225 frá Flateyri. Blossi var smíðaður fyrir Hlunnar ehf. á Flateyri … Halda áfram að lesa Gefjun EA 510
Month: maí 2021
Frosti ÞH 229
2433. Frosti ÞH 229 ex Frosti VE 144. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Frosti ÞH 229 kom til löndunar í Grindavík í gærkveldi og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Frosti var smíðaður í Kína árið 2000 og hét upphaflega Björn RE 79. Síðar Smáey VE 144, Frosti VE 144 í smátíma og loks Frosti … Halda áfram að lesa Frosti ÞH 229
Smyrill kom að landi með skammtinn
6484. Smyrill ÞH 57 ex Sómi SH 163. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Smyrill ÞH 57 er einn þeirra straandveiðibáta sem róa frá Húsvík og voru þessar myndir teknar í dag þegar hann kom að landi. Það er Hörður Sigurgeirsson sem stendur að útgerðinni Fiskiskeri ehf. sem gerir Smyril út. Höddi var ánægður með róðurinn í … Halda áfram að lesa Smyrill kom að landi með skammtinn
Eiður Baldur EA 69
7050. Eiður Baldur EA 69 ex Raffi GK 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Eiður Baldur EA 69 hefur róið frá Húsavík þessa fyrstu daga strandveiðitímabilsins sem hófst þann 2. maí sl. og voru þessar myndir teknar í dag. Eiður Baldur var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1988 og hét upphaflega Gylfi KÓ 9. Hann … Halda áfram að lesa Eiður Baldur EA 69
Bíldsey SH 65 kemur að landi í Grindavík
2704. Bíldsey SH 65 ex Bíldsey II SH 63. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Bíldsey SH 65 kemur hér á landleið til Grindavíkur í gær en upphaflega hét báturinn Konni Júl GK 704. Hann var smíðaður hjá Seiglu í Reykjavík árið 2006. Eigandi Hviða ehf. og heimahöfnin Garður. Árið 2008 fékk báturinn nafnið Kiddi Lár GK … Halda áfram að lesa Bíldsey SH 65 kemur að landi í Grindavík
Bergur VE 44
2677. Bergur VE 44 ex Brodd 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2021. Þór Jónson tók þessa mynd um sl. helgi á Stokksnesgrunni en hann er skipverji á Ljósafelli SU 70 sem var þar að veiðum. Þá sigldi hjá Bergur VE 44 sem var á austurleið en hann var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku … Halda áfram að lesa Bergur VE 44
Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
Sandgerði á vetravertíð árið 1988. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Í dag, 11. maí, er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd af vertíðarbátum við bryggju í Sandgerði. Þarna má þekkja Mumma GK 120, Unu í Garði GK 100, Freyju GK 364 og Sandgerðing GK 268 auk smærri báta. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
Hafborg í Grímsey
1922. Hafborg EA 152 ex Magnús EA 25. Ljósmynd Rósa Árnadóttir. Hér kemur mynd sem Rósa heitin Árnadóttir tengdamóðir mín tók í Grímsey árið 2001 en þangað fór hún oft til að kenna börnum eyjaskeggja sund. Þarna er Óli á Hafborginni eittthvað að græja en þetta önnur Hafborgin af fjórum sem hann hefur átt og … Halda áfram að lesa Hafborg í Grímsey
Garpur
2018. Garpur RE 148 ex Garpur SH 95. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Hér er Garpur að koma inn til Grindavíkur á dögunum en hann rær þaðan á grásleppu. Garpur var smíðaður árið 1989 á Seyðisfirði og hét upphaflega Litlanes ÞH 52, eigandi Óli Þorsteinsson á Þórshöfn. Litlanes ÞH 52 var selt til Fáskrúðsfjarðar árið 1990 … Halda áfram að lesa Garpur
Aðeins meira af Jökli
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér koma enn og aftur myndir af Jökli ÞH 299 sem ég tók í vikunni þegar hann kom til löndundar á Húsavík í fyrsta skipti. Það er nú bara þannig að þegar margar myndir eru teknar þá eru margar myndir til að birta. Efsta … Halda áfram að lesa Aðeins meira af Jökli









