
Uppsjávarveiðiskipið Jóna Eðvalds SF 200 kom til Hafnar í Hornafirði í dag og tók Sverrir Aðalsteinsson þessa mynd eftir að hún lagðist að bryggju.
Á heimasíðu Skinneyjar-Þinganess segir:
Jóna Eðvalds var smíðuð hjá Flekkefjord skipasmíðastöðinni í Noregi árið 1975. Skipið hét áður Birkeland, Björg Jónsdóttir og Krossey. Jóna fór í miklar endurbætur í Póllandi árið 2004 þar sem skip var um aðalvél og ný brú sett á skipið. 2008 var frystilestum breytt og RSW kælikerfi sett í lestar skipsins. Jóna Eðvalds stundar uppsjávarveiðar á síld, loðnu og makríl.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution