
Dragnótabáturinn Ísey EA 40 landaði á Húsavík í dag eftir veiðar á Skjálfanda en 1. september er heimilt að veiða í innanverðum flóanum.
Báturinn er gerður út af Hrísey Seafood ehf. og er með heimahöfn í Hrísey
Áður var báturinn gerður út af Saltabergi ehf. og þá með heimahöfn í Þorlákshöfn. Þá var skráningin ÁR 11.
Upphaflega hét báturinn Langanes ÞH 321 en honum hefur verið gerð skil á síðunni og lesa má þá færslu hér.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution