Golden Down FR 8. Ljósmynd Trefjar 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi núna nýverið nýjan Cleopatra bát til Fraserburgh á norðausturströnd Skotlands. Að útgerðinni stendur Gary Noble útgerðarmaður frá Fraserburgh. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Golden Dawn. Báturinn, sem er 10 brúttótonn að stærð, er af gerðinni Cleopatra 33. Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT … Halda áfram að lesa Cleopatra 33 til gildruveiða á humri afgreidd til Skotlands
Month: júní 2019
Capella siglir út Vigoflóa
Capella ex Thorbjorg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Capella sigldi framhjá Chapella rétt í þessu og tók ég þessa mynd út um gluggann í íbúðinni sem við dveljum í. Capella hét áður Thorbjorg og þar áður Pentland Phoenix og var smíðað í Japan árið 1993. Nánar tiltekið í Shin Kochi Jyukoskipasmíðastöðinni í Kochi. Skipið er … Halda áfram að lesa Capella siglir út Vigoflóa
Páll Jónsson GK 357
1030. Páll Jónsson GK 357 ex Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Páll Jónsson GK hefur fengið nýtt númer en 7. júní sl. varð hann GK 357. Nýi Páll Jónsson, sem er í smíðum í Póllandi, verður GK 7 en hann er væntanlegur til landsins í lok sumars og leysir þann gamla af … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 357
Júlíus Havsteen ÞH 1
1462. Júlíus Havsteen ÞH 1. Ljósmynd Pétur Jónasson. Júlíus Havsteen ÞH 1 var fyrsti skuttogari húsvíkinga, smíðaður hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi 1976. Togarinn, sem var tæplega 300 brl. að stærð, hét lengst af þessu nafni en þegar nýr Júlíus Havsteen ÞH 1 var keyptur frá Grænlandi var þessi seldur og fékk nafnið … Halda áfram að lesa Júlíus Havsteen ÞH 1
Joana Cunha á leið út Vigoflóann
Joana Cunha AN-213-C ex Maria Teixeira. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér siglir Joana Cunha AN-213-C fram hjá Chapela og út Vigoflóann fyrir stundu. Báturinn var smíðaður árið 1997 í Astilleros Ria de Aviles SL, í Nieva á Norður-Spáni, nálægt Gijon. Hann er 27,30 metrar að lengd og 7 metra breiður. Mælist 212 GT að stærð. Heimahöfn … Halda áfram að lesa Joana Cunha á leið út Vigoflóann
Þórir SF 77 myndaður úr lofti
2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Þórir SF 77 kom til hafnar í Grindavík og Jón Steinar sendi drónann á loft og árangur að venju góður. Þar með eru komnar drónamyndir af systurskipunum tveim frá Hornafirði eftir breytingar. 2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Bátarnir eru báðir við humarveiðar þessa dagana. … Halda áfram að lesa Þórir SF 77 myndaður úr lofti
Spitsbergen og Silver Cloud í höfn á Húsavík
Spitsbergen við Þvergarðinn. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Farþegaskipin Spitsbergen og Silver Cloud voru í höfn á Húsavík um helgina og tók Gaukur Hjartarson þessar myndir af þeim. Spitsbergen var smíðað árið 2009 hjá skipasmíðastöðinni Estaleiro Navais de Viana do Castelo í Viana do Castelo í Portúgal. Skipið var allt endurnýjað árið 2016 en það tekur … Halda áfram að lesa Spitsbergen og Silver Cloud í höfn á Húsavík
Mys Cheltinga kom til löndunar
Mys Cheltinga X-0524. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Elvar Jósefsson tók þessa mynd í gær af frystitogaranum Mys Sheltinga X-0524 sem hefur verið að veiðum á Reykjaneshrygg undanfarið. Togarinn er einn fimmtán togara sem smíðaðir voru í Stralsund í Þýskalandi eftir sömu teikningu og togararnir sem smíðaðir voru hjá Sterkoder í Noregi. Þerney var einn þeirra norsksmíðuðu. … Halda áfram að lesa Mys Cheltinga kom til löndunar
Þristur BA 36
1527. Þristur BA 36 ex Steinbjörg BA 273. Ljósmynd Þór Jónsson 2018. Þristur BA 36 kemur að landi á Djúpavogi á þessari mynd Þórs Jónssonar frá árinu 2018. Samkvæmt vef Fiskistofu er Hafnarnes Ver ehf. í Þorlákshöfn eigandi bátsins en heimahöfn hans er á Tálknafirði. Hann er gerður út til sæbjúgnaveiða. Báturinn hét upphaflega Gullfaxi … Halda áfram að lesa Þristur BA 36
Rio Arauca í Lissabon
Rio Arauca ex Melodia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Olíuflutningaskipið Rio Arauca liggur hér við akkeri á Tagusánni við Lissabon. Rio Arauca var smíðað í Samsung Shipbulding & Heavy Industries í Suður Kóreu árið 2011. Hét Melody til ársins 2013. Það er 274 metrar að lengd, 48 metra breitt og mælist 81,384 GT að stærð. Rio … Halda áfram að lesa Rio Arauca í Lissabon









