
Í morgun kom grænlenski frystitogarinn Sisimiut GR 6-18 til Hafnarfjarðar og Jón Steinar var þar mættur til að fanga hann á kortið.
Sisimiut er annar tveggja frystitogara sem Royal Greenland fær afhenta á þessu ári frá skipasmíðastöðinni í Astilleros de Murueta í Bilbao á Spáni.
Sismiut kom til Hafnarfjarðar beint frá Bilbao og mun hann taka veiðarfæri, umbúðir og fleira áður en haldið verður til veiða.

Sisimiut er 82,05 metra langur og 17,3 metra breiður og verður gerður út til veiða á þorski og grálúðu. Heimahöfn hans er Nuuk.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution