
Dofri BA 25 frá Patreksfirði er hér á siglingu á Breiðafirði um árið, sennilega 1982 en upphaflega hét báturinn Helga Guðmundsdóttir BA 77.
Helga Guðmundsdóttir BA 77 var smíðuð fyrir Vesturröst hf. á Patreksfirði hjá Bolsönes Verft í Molde í Noregi. Hún kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Patreksfirði 3. júní árið 1964.
Árið 1969, þegar ný Helga Guðmundsdóttir BA 77, leysti þessa af hólmi fékk báturinn nafnið Látraröst BA 177.
Í ársbyrjun 1971 keypti Ísbjörninn hf. í Reykjavík bátinn og fékk hann nafnið Ásborg RE 50. Í nóvember árið 1976 var báturinn seldur Sólborgu hf. í Grindavík og hélt báturinn nafninu en varð GK 52.
Það var svo í janúar árið 1978 sem Hafnarröst hf. á Patreksfirði keypti bátinn sem fékk nafnið Dofri BA 25.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.