Guðmundur Péturs ÍS 45

1753. Guðmundur Péturs ÍS 45 ex Látraröst BA 166. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Rækjutogarinn Guðmundur Péturs ÍS 45 frá Ísafirði kemur hér til hafnar á Húsavík um árið.

Hann hét upphaflega Mestre Manuel Casqueira og var smíðaður í Portúgal árið 1984 en keyptur hingað til lands árið 1986.

Það var Hraðfrystihús Patreksfjarðar hf. sem keypti hann og nefndi Þrym BA 7 og kom í stað eldri báts með sama nafni.

Árið 1990 fékk Þrymur nafnið Látraröst BA 66 og þrem árum síðar það nafn sem hann ber á myndinni.

Guðmundur Péturs ÍS 45 var með heimahöfn á Ísafirði.

Árið 2000 var Guðmundur Péturs orðinn RE 42 og ári síðar fékk hann nafnið Kópanes RE 270.

Kópanes var selt til Spánar árið 2003.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd