
Dragnótabáturinn Steinunn SH 167 kemur hér að landi í Ólafsvík, myndina tók Alfons vinur minn.
Steinunn hét upphaflega Arnfirðingur II GK 412 og var smíðaður í Stálvík í Garðabæ 1970. Eigandi Arnfirðings II frá því í ársbyrjun 1971 var Arnarvík hf. í Grindavík .
Þegar Arnfirðingur II,sem var 105 brl. að stærð, var að koma úr róðri þann 20. desember sama ár hlekktist honum á í innsiglingunni í Grindavík og rak á land.
Bátnum var síðar bjargað af strandstað og í ágúst 1972 kaupa Gunnar Richter í Reykjavík og Jóhann Níelsson í Garðabæ bátinn og nefna hann Ingibjörgu RE 10.
Í byrjun febrúar 1973 er hann seldur Stakkholti hf. í Ólafsvík og þá fær hann nafnið Steinunn SH 167. Steinunn var lengd og yfirbyggð 1982 og mælist í dag 153 brl. að stærð.
Upphaflega var í bátnum 565 hestafla Caterpillar aðalvél en í dag er í honum 715 hestafla Caterpillar.
1990 seldi Stakkholt hf. báta sína. Núverandi eigendur Steinunnar stofnuðu þá útgerðarfélagið Steinunni ehf. og keyptu bátinn.
Síðan þá er búið að gjörbreyta bátnum, m.a. setja á hann nýja brú, nýr skutur settur á hann auk perustefnis ofl. breytinga.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.