
Nanna Ósk II ÞH 133 kom ný til heimahafnar á Raufarhöfn þann 5. nóvember árið 2010 en þessar myndir voru teknar daginn eftir.
Það var Útgerðarfélagið Stekkjavík ehf. á Raufarhöfn sem lét smíða bátinn, sem er af Cleopatra 38 gerð, hjá Trefjum í Hafnarfirði.
Að útgerðinni standa bræðurnir Ragnar Axel og Hólmgrímur Jóhannssynir. Nanna Ósk II ÞH 133 er 15 brúttótonn og gerð út í aflamarkskerfinu.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.