
Skemmtiferðaskipið Seven Seas Splendor hafði viðdvöl á Skjálfanda í dag hvar farþegar þess voru fluttir í land á Húsavík með léttbátum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í morgun þegar hvalaskoðunarbátar lögðu upp í ferðir á Skjálfanda og eflaust farþegar af Seven Seas Slendor um borð í þeim.
Seven Seas Splendor er 224 metrar að lengd og breidd þess er 32 metrar. Það mælist 54,000 GT að stærð og tekur 750 farþega.
Skipið, sem var smíðað árið 2020, siglir undir fána Marshalleyja og heimahöfn þess er Majuro.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution