
Uppsjávarveiðiskipið Aðalsteinn Jónsson SU 11 frá Eskifirði er þessa dagana í flotkvínni hjá Slippnum á Akureyri.
Aðalsteinn Jónsson hét áður Libas og smíðaður árið 2004, hann er 94 metrar að lengd og tæpir 18 metrar á breidd.
Eskja hf. á Eskifirði keypti skipið til landsins árið 2016.
Aðalvél skipsins er Wartsila 12V32, 6000 kw eða 8100 hestöfl og burðargeta er um 2400 m3 í 12 kælitönkum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution