
Nýja Hoffellið er komið inn á Fáskrúðsfjörð í brakandi blíðu og fékk ég þessa mynd senda áðan.
Fjallið sem skipið er nefnt eftir gnæfir þarna yfir th. á myndinni.
Í dag kl. 14:00 verður móttökuathöfn við Bæjarbryggjuna þar sem hið glæsilega skip verður blessað og því gefið nafn. Að athöfn lokinni verður skipið til sýnis og eru allir velkomnir. Sjómenn úr áhöfninni munu fara um skipið með gestum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution