
Bergey VE 144 hefur nú fengið nafnið Bergur VE 44 en hann, Bergur, hefur verið slipp í Reykjavík síðan um mánðarmótin.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að að þar hafi verið unnið að viðhaldi skipsins auk þess sem það skal málað bæði hátt og lágt.
Dótturfélag Síldarvinnslunnar, Bergur – Huginn ehf. í Vestmannaeyjum, festi kaup á útgerðarfélaginu Bergi ehf. í októbermánuði 2020.
Þegar kaupin áttu sér stað var togarinn Bergur VE 44 í eigu Bergs ehf. en hann var síðan seldur til Vísis í Grindavík án aflaheimilda sumarið 2021.
Ákveðið hefur verið að halda áfram starfsemi Bergs ehf. og hefur Bergey verið seld félaginu og nafni skipsins breytt í Bergur VE. Skip Bergs ehf. hefur alla tíð borið nafnið Bergur VE 44.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution