Vermland

IMO 9488827. Vermland. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Fóðurflutningaskipið Vermland kom til Grindavíkur í gærkveldi eftir um fjögurra sólarhringa siglingu frá Stórasundi í Noregi. Skipið er fóður fyrir fiskeldi. Vermland var smíðað 2008 og er 88 metrar að lengd og 13,7 metrar á breidd. Það mælist 2,199 GT að stærð. Skipið siglir undir hollensku flaggi … Halda áfram að lesa Vermland →

Laxinn á Naustavíkurhólnum

5920. Laxinn ÞH 177 ex Laxinn GK 177. Ljósmynd Hörður Sigurgeirsson 2022. Laxinn á Naustavíkurhólnum voru skilaboðin sem fylgdu þessari mynd sem sýnir Reyni Hilmarsson við handfæraveiðar á Laxinum. Naustavíkurhóllinn er í vestanverðum Skjálfandaflóa. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Laxinn á Naustavíkurhólnum →

Góð þátttaka í strandveiðum

Strandveiðibátar á Akureyrarpolli í gær. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessi mynd var tekin á Akureyri í gær og sýnir tvo strandveiðibáta en eins og áður hefur komið hér fram hófst strandveiðitímabilið í gær. Á vef Landssambands smábátaeigenda segir í dag: Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu eru alls 470 bátar komnir með virk leyfi til strandveiða.  Af … Halda áfram að lesa Góð þátttaka í strandveiðum →

Otter Bank BL 937879

IMO 9219721. Otter Bank BL 937879 ex Rokur FD 1205. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Otter Bank við slippkantinn í dag en hann hét áður Rokur FD 1205 frá Runavík í Færeyjum. Hann hefur ásamt systurskipi sínu, Lerkur FD 1206, verið seldur til Frakklands þar sem heimahöfnin verður Boulogne -Sur-Mer. Skipin eru í klössun í Slippstöðinni … Halda áfram að lesa Otter Bank BL 937879 →

Hafþór EA 19

7144. Hafþór EA 19 ex Hafþór AK 140. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Hafþór EA 19 kemur hér að landi í Sandgerðisbót í dag, á fyrsta degi strandveiðitímabilsins 2022. Báturinn hét upphaflega Diddó BA 38 en hann var smíðaður hjá Trefjum hf. í Hafnarfirði árið 1989. Síðan þá hefur hann heitið mörgum nöfnum en það … Halda áfram að lesa Hafþór EA 19 →

Merike í Smugunni

MO 9227534. Merike EK 1802 ex Regina C. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Eiríkur Sigurðsson tók þessa mynd af rækjufrystitogaranum Merike í Smugunni á dögunum. Eiríkur er skipstjóri á Reval Viking sem er í eigu útgerðafyrirtækisins Reyktal líkt og Merike. Merike EK 1802 var smíðaður fyrir Grænlendinga í Danmörku árið 2002 og hét áður Regina C. Togarinn er … Halda áfram að lesa Merike í Smugunni →