Góð þátttaka í strandveiðum

Strandveiðibátar á Akureyrarpolli í gær. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022.

Þessi mynd var tekin á Akureyri í gær og sýnir tvo strandveiðibáta en eins og áður hefur komið hér fram hófst strandveiðitímabilið í gær.

Á vef Landssambands smábátaeigenda segir í dag:

Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu eru alls 470 bátar komnir með virk leyfi til strandveiða.  Af þeim komust 132 í róður í gær á fyrsta degi veiðanna og lönduðu alls 90 tonnum.

Á sama tíma í fyrra viðraði afar vel þar sem 233 bátar lönduðu alls 164 tonnum eftir daginn.  Þá höfðu verið gefin út 434 leyfi.

Litlar breytingar voru á aflatölum hvers báts milli ára nema á svæði B þar sem þær fóru úr 650 kg niður í 475 kg.

Eins og á undanförnum árum eru flestir með leyfi á svæði A, 244 bátar sem er fjölgun um 56 frá í fyrra.  Á svæði B hafa 77 bátar fengið leyfi, 59 á svæði C og 90 á svæði D eða 31 færri en við upphaf veiða árið 2021.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s