
Jón Kjartansson SU 111 liggur hér við bryggju á Eskifirði að haustlagi um miðjan níunda áratug síðsutu aldar.
Jón Kjartansson hét upphaflega Narfi RE 13 og var smíðaður 1960 sem síðutogari í Nosbiskrug skipasmíðastöðinni í Rensburg í Vestur-Þýskalandi. Hann var smíðaður fyrir Guðmund Jörundsson, skipstjóra og útgerðarmann á Akureyri.
Guðmundur Jörundsson lét breyta Narfa í skuttogara árið 1974 og skipinu var breytt í nótaskip árið 1978. Fljótlega á eftir var Narfi seldur til Hraðfrystihúss Eskifjarðar (Eskju) og fékk skipið þá nafnið Jón Kjartansson SU 111.
Lesa má nánar um skipið hér.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution