Óli G á Húsavík

2657. Óli G GK 50 ex Elín BA 58. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línubáturinn Óli G GK 50 frá Sandgerði kom til löndunar á Húsavík í dag en línuna höfðu kallarnir lagt í Skjálfanda. Báturinn er í eigu Stellar Seafood ehf. í Sandgerði en hét upphaflega Særif SH 25. Hann var smíðaður hjá Trefjum árið … Halda áfram að lesa Óli G á Húsavík

Gunilla frá Gautaborg

IMO 5239515. Gunilla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Sænska seglskipið Gunilla hefur dólað um Skjálfandaflóa síðan í gær og lá fyrir akkerum í nótt. Hún kom upp að Bökugarðinum eftir hádegi í dag og náði í vistir en sigldi síðan á braut. Hún var byggð sem fragtskip í Oskarshamn í Svíþjóð árið 1941 og notað sem … Halda áfram að lesa Gunilla frá Gautaborg

Ný Cleopatra 33 til Frakklands

Lauralex II SN 935 470. Ljósmynd Trefjar 2020. Á dögunum afgreiddi Bátasmiðjan Trefjar ehf í Hafnarfirði nýjan Cleopatra bát til La Turballe á vesturströnd Frakklands. Að útgerðinni stendur Alexis Baumal sem jafnframt er skipstjóri á bátnum sem hefur hlotið nafnið Lauralex II. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 33, er 11 brúttótonn að stærð. Aðalvél … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Frakklands

Lúxussnekkjan Calypso

IMO: 1006544. Calypso ex Sorimar. Þessi mynd var tekin í morgun þegar lúxussnekkjan Calypso lét úr höfn á Húsavík. Ca­lyp­so, sem kom til Húsavíkur í gærkveldi, siglir undir fána Caymaneyja og er með heimahöfn í Geor­get­own.  Calypso hét Solimar og var smíðuð í Amels í Hollandi árið 2003. Hún er 61,5 metrar að lengd, breidd hennar er … Halda áfram að lesa Lúxussnekkjan Calypso

Svalbakur EA 302

1352. Svalbakur EA 302 ex Stella Karina. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. ÚA togarinn Svalbakur EA 302 heldur hér til veiða frá Akureyri um árið en togarinn var smíðaður árið 1969. Útgerðarfélag Akureyringa keypti systurskipin Stellu Karinu og Stellu Kristinu frá Færeyjum árið 1973 og komu þau til heimahafnar á Akureyri í desember það ár. Skipin voru … Halda áfram að lesa Svalbakur EA 302