Gadus Njord N-125-VV. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2015. Hér koma tvær myndir af norska skuttogaranum Gadus Njord sem Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók. Efri myndina tók hann árið 2015 en togarinn er í eigu Havfisk sem fékk á árunum 2013 og 2014 afhenta þrjá nýja togara eftir sömu teikningu, Gadus Poseidon, Gadus Njord og … Halda áfram að lesa Gadus Njord
Month: ágúst 2020
Magnús Jón ÓF 14
2091. Magnús Jón ÓF 14 ex Egill ÓF 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Magnús Jón ÓF 14 kemur hér að landi á Siglufirði fyrir skömmu en þaðan var hann gerður út til strandveiða í sumar. Það er Marsibil ehf. í Fjallabyggð sem gerir bátinn út en hann er af gerðinni Gáski 1000 og var smíðaður … Halda áfram að lesa Magnús Jón ÓF 14
Aðalbjörg RE 5 – Myndasyrpa
1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Aðalbjörg RE 5 kom til Grindavíkur í kvöld og tók Jón Steinar þessar myndir á drónann sinn. Aðalbjörg var að veiðum suður af Eldey og var aflinn 6.5 tonn. Uppistaðan langlúra, eða um 3 tonn. Aðalbjörg RE 5 var smíðuð hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987 og lengd … Halda áfram að lesa Aðalbjörg RE 5 – Myndasyrpa
Múlaberg SI 22 á Húsavík
1281. Múlaberg SI 22 ex Múlaberg ÓF 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Skuttogarinn Múlaberg ÓF 22 kom til Húsavíkur í morgun þeirra erinda að ná í nýtt rækjutroll sem sett var upp hjá Ísfelli. Múlaberg, sem er annar svokallaðra tvegga Japanstogaranna sem enn eru í útgerð á Íslandi, er í eigu Ramma hf. í Fjallabyggð. … Halda áfram að lesa Múlaberg SI 22 á Húsavík
Ísey EA 40 á Húsavík
1458. Ísey EA 40 ex Ísey ÁR 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Dragnótabáturinn Ísey EA 40 kom til Húsavíkur og landaði afla sínum en báturinn er gerður út af Hrísey Seafood ehf. í Hrísey. Áður var báturinn gerður út af Saltabergi ehf. og með heimahöfn í Þorlákshöfn. Þá var skráningin ÁR 11. Bátnum hefur verið … Halda áfram að lesa Ísey EA 40 á Húsavík
Háey II ÞH 275
2757. Háey II ÞH 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línubáturinn Háey II ÞH 275 kom til hafnar á Húsavík sl. föstudag eftir að hafa verið í skverun á Siglufirði. Einnig var skipt um vél í bátnum sem gerður er út af GPG Seafood ehf. á Húsavík. Háey II er af gerðinni Víkingur 1200, smíðuð hjá … Halda áfram að lesa Háey II ÞH 275
Sólborg RE 27 við bryggju í Reykjavík
2986. Sólborg RE 27 ex Aja Aaju. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línu- og netabáturinn Sólborg RE 27 er hér við bryggju í Reykjavík en myndin var tekin í byrjun júlímánaðar. Sólborg RE 27 var smíðuð hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1988. Hún hét áður Aja Aaju GR 2-258 og var gerð út frá … Halda áfram að lesa Sólborg RE 27 við bryggju í Reykjavík
Anna ÓF 83
2320. Anna ÓF 83 ex Már ÍS 125. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Anna ÓF 83 sem hér sést koma til hafnar á Siglufirði í byrjun vikunnar hét upphaflega Blossi ÍS 125 og var frá Flateyri. Eigandi Hlunnar ehf. þar í bæ. Báturinn er af Gáskagerð og samkvæmt vef Árna Björns Árnasonar, aba.is, einn þriggja slíkra … Halda áfram að lesa Anna ÓF 83
Whales EA 200 kemur að landi
500. Whales EA 200 ex Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hvalaskoðunarbáturinn Whales EA 200 kemur hér að landi á Hauganesi í byrjun vikunnar. Báturinn, sem er 53 brl. að stærð, hét upphaflega Gunnar Hámundarson GK 357 og var smíðaður árið 1954 í Ytri Njarðvík. Hann var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur. … Halda áfram að lesa Whales EA 200 kemur að landi
Viggó SI 32
1544. Viggó SI 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Viggó SI 32 sést hér koma til hafnar á Siglufirði á dögunum en þar hefur hann átt heimahöfn síðan árið 1979. það ár var hann smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd fyrir Sverri Björnsson á Siglufirði sem hefur átt hann allar götur síðan. Viggó er 8,77 … Halda áfram að lesa Viggó SI 32









