
Viggó SI 32 sést hér koma til hafnar á Siglufirði á dögunum en þar hefur hann átt heimahöfn síðan árið 1979.
það ár var hann smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd fyrir Sverri Björnsson á Siglufirði sem hefur átt hann allar götur síðan.
Viggó er 8,77 metrar að lengd og 3,64 á breidd og mælist 8,5 BT (8,46 brl.)
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution