
Norma Mary, skip Onward Fishing Company dótturfélags Samherja í Bretlandi, kom til löndunar á Akureyri í gærkveldi.
Norma Mary var smíðuð 1989 og hefur áður borið nöfnin Ocean Castle, Napoleon og Fríðborg áður en hún fékk núverandi nafn árið 2010.
Norma Mary var lengd 2011 og er nú 73,4 metrar að lengd. Breiddin er 13 metrar og hún mælist 2342 GT að stærð.
Norma Mary er með heimahöfn í Hull.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution