
Jón Steinar myndaði Óla G GK 50 koma til hafnar í Grindavík í gær en báturinn er í eigu Stellar Seafood ehf. í Sandgerði.
Báturinn hét upphaflega Særif SH 25 og var smíðaður hjá Trefjum árið 2005. Eigandi Melnes ehf. á Rifi.
Árið 2015 fékk báturinn nafnið Sæbliki SH 32 en þá hafði útgerðin fengið nýtt Særif SH 25.
Sumarið 2018 fær báturinn nafnið Elín BA 58 sem hann bar í rúmt ár áður en hann fékk núverandi nafn, Óli G GK 50.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution

