
Kópur ÞH 114 liggur hér við bryggju á Húsavík og hygg ég að myndin hafi verið tekin þegar báturinn kom nýr til Húsavíkur.
Kópur, sem var 12 brl. að stærð og smíðaður í Skipasmíðastöð KEA, var afhentur eiganda sínum Gesti Halldórssyni á Húsavík skömmu fyrir páska árið 1970. Hann var með smíðanúmer 102 hjá stöðinni og teiknaður af Tryggva Gunnarssyni.
Kópur ÞH 114 var með 159 hestafla Perkinsvél og kraftblökk að því fram kemur í Degi þann 2. apríl 1970.
Í ársbyrjun 1971 kaupa Hörður Arnórsson og bræðurnir Guðjón og Kristján Björnssynir bátinn af Gesti og nefna Þengil ÞH 114.
Þeir gera bátinn út til ársins 1977 en þá hafa þeir bátaskipti við Skúla Magnússon í Grindavík og Þengill fær nafnið Pétursey GK 184.
Skiptin fara fram í maí 1977 en þann 15. september sama ár strandaði báturinn við Grindavík. Báturinn eyðilagðist en maður sem var einn um borð bjargaðist með hjálp björgunarsveitarinnar Þorbjörns. Uppl. Íslensk skip.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution