Sunnuberg GK 199

1002. Sunnuberg GK 199 ex Gísli Árni RE 375. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Loðnuskipið Sunnuberg GK 199 siglir hér til hafnar í Njarðvík um árið en það var Sigluberghf. í Grindavík sem gerði skipið út.

Sunnuberg hét upphaflega Gísli Árni RE 375 og var smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík í Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi árið 1966. 

Gísli Árni var 355 brl. að stærð búinn 700 hestafla Wichmann aðalvél. Báturinn var endurmældur árið 1970 og mældist þá 296 brl. að stærð.

Hann var lengdur og yfirbyggður árið 1973 og mældist eftir það 336 brl. að stærð. Árið 1977 var skipt um aðalvél og kom 1500 hestafla Wichmann í stað þeirrar sem áður var.

Gísli Árni RE 375 var seldur til Grindavíkur árið 1988 og fékk nafnið Sunnuberg GK 199. Kaupandi Fiskimjöl & lýsi hf. í Grindavík.

Sunnubergið var selt til Vopnafjarðar í ársbyrjun 1996 en fjórum árum áður hafði verið skipt um brú á skipinu.

Sunnubergið hélt nafninu og varð NS 199.

Árið 1999 var Sunnubergið selt til Raufarhafnar þar sem það fékk nafnið Arnarnúpur ÞH 272.

Selt úr landi árið 2004.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd