Kópanes RE 270

1753. Kópanes RE 270 ex Guðmundur Péturs RE 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Kópanes RE 270 ligur hér við bryggju um árið en það var Útgerðarfélagið Tjaldur ehf. sem átti skipið og gerði út.

Kópanes hét upphaflega Mestre Manuel Casqueira og var smíðað í Portúgal árið 1984 en keypt hingað til lands árið 1986.

Það var Hraðfrystihús Patreksfjarðar hf. sem keypti það og nefndi Þrym BA 7 og kom í stað eldri báts með sama nafni.

Árið 1990 fékk Þrymur nafnið Látraröst BA 66 og þrem árum síðar hét hann Guðmundur Péturs ÍS 45 með heimahöfn á Ísafirði.

Árið 2000 var Guðmundur Péturs orðinn RE 42 og ári síðar fékk hann nafnið Kópanes RE 270.

Kópanes var selt til Spánar árið 2003.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd