
Uggi ÞH 253 var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun hf. í Hafnarfirði árið 1980.
Báturinn var smíðaður fyrir aðila á Kópaskeri en árið 1996 keypti Ingólfur Árnason á Húsavík Ugga og átti hann til ársins 2013.
Þá fékk hann nafnið Hafdís EA með heimahöfn á Akureyri og þar er hann enn.
Báturinn er skráður sem skemmtibátur en hann fór í núllflokk hjá Fiskistofu árið 1997.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution