
Þórsnes SH 245 hét upphaflega Helga Guðmundsdóttir BA 77 og var smíðuð árið 1964 fyrir Vesturröst hf. á Patreksfirði hjá Bolsönes Verft í Molde í Noregi.
Árið 1969, þegar ný Helga Guðmundsdóttir BA 77, leysti þessa af hólmi fékk báturinn nafnið Látraröst BA 177.
Í ársbyrjun 1971 keypti Ísbjörninn hf. í Reykjavík bátinn og fékk hann nafnið Ásborg RE 50. Í nóvember árið 1976 var báturinn seldur Sólborgu hf. í Grindavík og hélt báturinn nafninu en varð GK 52.
Í janúar árið 1978 keypti Hafnarröst hf. á Patreksfirði bátinn sem fékk nafnið Dofri BA 25.
Árið 1982 er Vesturröst hf. aftur orðinn eigandi að bátnum og hann fær sitt gamla nafn, Helga Guðmundsdóttir BA 77.
Fyrstu sex 5-6 mánuðina árið 1983 bar báturinn skráninguna Helga Guðmundsdóttir SH 108 en um mitt það ár fékk hann nafnið Þórsnes SH 108 og var í eigu samnefnds fyrirtækis í Stykkishólmi.
Byggt var yfir bátinn og skipt um brú árið 1987.
Árið 2005 fékk báturinn nafnið Steinunn Finnbogadóttir RE 345 og 2017 hét hann Fjóla KE 345.
Seldur úr landi árið 2022.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution