Þórsnes II SH 109

1424. Þórsnes II SH 109. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Hér er Þórsnes II SH 109 að kippa á milli trossa á vetrarvertíð á Breiðafirði um árið en myndina tók Hreiðar Olgeirsson skipstjóri á Kristbjörgu ÞH 44.

Þórsnes II SH 109 var eitt þeirra raðsmíðaskipa sem Slippstöðin á Akureyri smíðaði og voru af­hent eigendum sínum á árunum 1971 til 1975. Stærð þessara skipa, var 105 – 150 brl. og var Þórsnesið, sem var fjórtánda og síðasta skipið, 143 brl. að stærð. Það var smíðað fyrir samnefnt fyrirtæki í Stykkishólmi.

Þórsnes II SH 109 var yfirbyggt árið 1988 í Njarðvík og um leið sett ný brú á það og munu koma myndir af því eftir breytingarnar innan tíðar.

Árið 2012 var skráningu bátsins breytt í SH 209 og árið 2015 fékk hann nafnið Stinningskaldi HF 27.

Það stóð ekki lengi og ári síðar fékk báturinn nafnið Steini Sigvalda GK 526 með heimahöfn í Njarðvík.

Það var Maron ehf. sem gerði bátinn út um tveggja ára skeið en í júnímánuði 2017 kom upp eldur í bátnum þar sem hann var við bryggju í Þorlákshöfn.

Eldurinn kom upp framskips og voru skemmdir það miklar að ekki var ráðist í viðgerðir á bátnum. Var honum siglt utan til niðurrifs.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd